Bęn Indjįna
27. maķ 2008 klukkan 16:07
Ó, mikli andi,
hvers rödd ég heyri í vindinum
heyr mig.
Sem eitt þinna mörgu barna
kem ég til þín.
Ég er smár og veikburða.
Ég þarfnast afls þíns og visku.
Megi ég ganga í fegurð,
lát augu mín æ fá geymd
hin rauðu og purpuralitu sólsetur.
Láttu hendur mínar virða þau verk,
sem þú hefur skapað,
og eyru mín hlusta eftir þinni rödd.
Gerðu mig vitran, svo ég fái skynjað
þau fræði sem þú hefur fólgið
í hverjum þumlungi jarðarinnar.
Gerðu mig sterkan,
ekki til að miklast yfir bræðrum mínum,
heldur til þess að verða þess megnugur,
að berjast við mesta óvin minn,
sjálfan mig.
Gerðu mig hæfan til þess að ganga
fram fyrir þig með opnum huga,
þannig að þegar lífið þverr líkt og dagsólin dvín,
komi andi minn til þín laus við skömm.
hvers rödd ég heyri í vindinum
heyr mig.
Sem eitt þinna mörgu barna
kem ég til þín.
Ég er smár og veikburða.
Ég þarfnast afls þíns og visku.
Megi ég ganga í fegurð,
lát augu mín æ fá geymd
hin rauðu og purpuralitu sólsetur.
Láttu hendur mínar virða þau verk,
sem þú hefur skapað,
og eyru mín hlusta eftir þinni rödd.
Gerðu mig vitran, svo ég fái skynjað
þau fræði sem þú hefur fólgið
í hverjum þumlungi jarðarinnar.
Gerðu mig sterkan,
ekki til að miklast yfir bræðrum mínum,
heldur til þess að verða þess megnugur,
að berjast við mesta óvin minn,
sjálfan mig.
Gerðu mig hæfan til þess að ganga
fram fyrir þig með opnum huga,
þannig að þegar lífið þverr líkt og dagsólin dvín,
komi andi minn til þín laus við skömm.
Hann, Hśn
26. maķ 2008 klukkan 12:27
Þegar hann talar, er það ,,Gullin vísdómur".
Þegar hún talar, er það ,,Heimskulegt blaður".
Þegar hann segir henni hvað á að gera, eru það ,, Holl og góð ráð".
Þegar hún segir honum hvað á að gera, kallast það ,,Nöldur".
Þegar hann fær sér síðdegisblund, kallast það ,,Hvíld sem hann á skilið eftir erfiði dagsins".
Þegar hún fær sér síðdegisblund, þá er hún að ,,Svíkjast undan skyldustörfunum".
Þegar hann öskrar á börnin, er hann að ,,Ala þau upp".
Þegar hún öskrar á börnin, þá er það vegna þess að hana ,,Skortir alla þolinmæði".
Þegar hann er fúll og ónærgætin við hana, er það vegna þess að ..Hún kom honum í vont skap".
Þegar hún er fúl og ónærgætin við hann, er það vegna þess að hún er ,,Skapvond að eðlisfari".
Þegar hann er ekki í stuði til að ,,sofa hjá henni" er það vegna þess að hann er svo ,,Óskaplega þreyttur".
Þegar hún er ekki í stuði til að ,,sofa hjá honum" er það vegna þess að hún er ,,Haldin kynkulda".
Ef hann hefði skrifað þessar línur, þá væri það ,,Heimspekilegt snilldarverk".
Ef hún hefði skrifað þessar línur, þá væri hún ,,Bara að kvarta rétt einu sinni enn".
Þegar hún talar, er það ,,Heimskulegt blaður".
Þegar hann segir henni hvað á að gera, eru það ,, Holl og góð ráð".
Þegar hún segir honum hvað á að gera, kallast það ,,Nöldur".
Þegar hann fær sér síðdegisblund, kallast það ,,Hvíld sem hann á skilið eftir erfiði dagsins".
Þegar hún fær sér síðdegisblund, þá er hún að ,,Svíkjast undan skyldustörfunum".
Þegar hann öskrar á börnin, er hann að ,,Ala þau upp".
Þegar hún öskrar á börnin, þá er það vegna þess að hana ,,Skortir alla þolinmæði".
Þegar hann er fúll og ónærgætin við hana, er það vegna þess að ..Hún kom honum í vont skap".
Þegar hún er fúl og ónærgætin við hann, er það vegna þess að hún er ,,Skapvond að eðlisfari".
Þegar hann er ekki í stuði til að ,,sofa hjá henni" er það vegna þess að hann er svo ,,Óskaplega þreyttur".
Þegar hún er ekki í stuði til að ,,sofa hjá honum" er það vegna þess að hún er ,,Haldin kynkulda".
Ef hann hefði skrifað þessar línur, þá væri það ,,Heimspekilegt snilldarverk".
Ef hún hefði skrifað þessar línur, þá væri hún ,,Bara að kvarta rétt einu sinni enn".
EÐA HVAÐ?
Spor
20. maķ 2008 klukkan 07:47
Nótt eina dreymdi mann draum. Honum fannst sem hann væri á gangi eftir ströndu, með Drottni. Í skýjum himinns flöktu myndir úr lífi mannsins. Við hverja mynd greindi hann tvennskonar fótspor í sandinum, önnur voru hans eigin spor, hin voru spor Drottins. Er síðasta myndin birtist fyrir augum hans, leit hann um öxl á sporin í sandinum. Hann tók eftir því að víða á leiðinni voru aðeins ein spor. Hann sá einnig að það var á þeim augnablikum lífsins, sem hve erfiðastar höfðu reynst. Olli þetta honum miklu hugarangri, og hann tók það ráð að spyrja Drottinn hverju þetta sætti. ,,Drottinn þú sagðir, að þegar ég eitt sinn hefði ákveðið að fylgja þér, mundir þú ganga alla leiðina í fylgd með mér. En ég hef tekið eftir, að á meðan á erfiðustu stundum lífs míns hefur staðið, eru aðeins ein spor í sandinum.. Ég fæ ekki skilið, hvernig þú gast fengið af þér, að skilja mig eftir einan, þegar ég þarfnaðist þín mest." ,,Drottinn svaraði," Ó þú, dýrmæta barn mitt. Ég elska þig, og mun aldrei skilja þig eitt eftir. Á meðan þessir erfiðu tímar lífs þíns liðu - þar sem þú sérð aðeins ein spor í sandinum - var það ég sem bar þig.
Smį Saga af Pśffa
19. maķ 2008 klukkan 22:23
Í gær fengum við lítið lamb í fóstur rétt nokkura klukkutíma gamalt, mamman hafði hafnað því og var bara með einhverja stæla og leiðindi. Svo er þetta litla grey hálf bæklað með óttalega kræklóttar fætur. Það var varla búið að koma lambinu fyrir á handklæði á gólfinu en Púffi byrjaði að þvo því og nostra við það, hann lagðist svo hjá því og kúrði sig upp að því til að halda á því hita. Hann virtis strax gera sér grein fyrir því að það átti óttalega bágt. Allt kvöldið vék hann varla frá því, hann vildi ekki borða og mátti ekkert vera að því að fara út að pissa, hann rétt skaust út pissaði og rauk svo inn aftur og lagðist hjá lambinu. Í dag er hann aðeins farin að róast yfir þessu, enda lambið að hressast. Hann er reyndar alltaf að kíkja ofan í kassann þar sem lambið liggur, fylgjast með hvort allt sé ekki í besta lagi. Það er hreint frábært að verða vitni að svona mikill gæsku og góðvild, og við mannfólkið gætum nú lært heilmikið af þessu.
Samstaša
19. maķ 2008 klukkan 21:34
Er ekki orðið tímabært að við íslendingar förum að sýna örlitla samstöðu. Fólk hlýtur að vera þreytt á þeim endalausu verðhækkunum sem dynja yfir okkur nánast á hverjum degi. Ég bjó um tíma í Danmörku, ef einhver vara hækkaði í verði þar, hætti fólk einfaldlega að kaupa hana og svona er þetta víða í heiminum, fólk hættir að kaupa vörur eða þjónustu sem hækka óeðlilega. Þetta þurfum við íslendingar að læra, læra að standa saman. Við eigum að halda að okkur höndum og þrýsta á verðlækkanir með því að hætta að kaupa vörur eða þjónustu sem við getum verið án og spara eins og við getum, ekki láta bjóða okkur þetta endalaust. Við getum líka þrýst á eldsneytislækkun með því að sameinast í bílum, í búðina eða vinnuna, nota allmenningsvagna og reyna að spara eldsneyti eins og við getum, það er alveg víst að eldsneyti lækkar ef salan drekst verulega saman. Það er alveg sama hvert er litið allt hefur hækkað og er að hækka. Nýjustu launasamningar eru gjörsamlega foknir út um gluggann, að ekki sé minnst á lækkanirnar sem urðu á matvöru á síðasta ári, þetta er allt horfið og vel það. Það er ekki nokkur hemja að bensínlíterinn kosti um 160kr. og fer hækkandi, díselolían að nálgast 200kr. Því var lofað þegar þungaskatturinn var tekin af að díselolína yrði ódýrari en bensínið, það hefur ekki verið staðið við þetta frekar en annað sem stjórnvöld lofa. Þessi blessaða ríkisstjórn er algerlega máttlaus. Síðan hún komst til valda hefur flest farið niður á við í þjófélaginu, verðbólgan er komin á skrið, krónan hefur hríð fallið, vextir hafa hækkað, Það er orðið mun erfiðara að lifa í dag heldur en það var fyrir ári síðan. það virðis ekkert vera gert til að sporna við þessari þróun, er fólkið sem kosið var til að stjórna landinu ekki að vinna vinnuna sína? Við skulum athuga það að fólkið á þinginu, ríkisstjórnin er í vinnu hjá okkur, fólkinu í landinu og ef það stendur sig ekki eigum við alls ekki að kjósa það aftur til valda. Það eru ekki þingmenn eða ráðherrar sem eru að skapa hin raunverulegu verðmæti í þessu landi, það gerir hins vegar fólkið í frystihúsunum, sjómenn, bændur, verkafólkið og svo framvegis. Það virðis vera hægt að eyða stórum fjámunum í flest annað en mannsæmandi laun handa þeim sem lægst hafa launin. Eitt af kosningarloforðum þessarar ríkisstjórnar var að bæta verulega kjör aldraða og öryrkja, þetta hefur ekki verið gert. Það er til skammar hvernig komið er fram við aldraða, aldraðir eiga að fá að njóta æfikvöldsins án þess að þurfa að vera með áhyggjur af fjármálum. Þeir eiga t.d. ekki að borga skatta og eiga í raun að fá frítt rafmagn, hita, sjónvarp, að ekki sé talað um lyf og læknisþjónustu. Ég get ekki hætt án þess að minnast aðeins á bankanna. Það er ótrúlegt að bankarnir í landinu komast upp með það að níðast á viðskiptavinum sínum með þvílíkri okurvaxtastefnu að það hálfa væri nóg. Lánin okkar hafa hækkað svo um munar vegna hruns krónunar svo ofan á þetta allt saman erum við að borga verðtryggingu, löngu úrelt fyrirbæri sem hvergi fyrirfinnst annarstaðar í heiminum. Það er ansi hart að það skuli endalaust vera hægt að koma svona fram við fólk og það er löngu orðið tímabært að stjórnvöld fari að snúa sér að því að standa vörðu um velferð fólksins í landinu.
Nż Tękifęri
13. maķ 2008 klukkan 08:40
Það koma tímar í lífi okkar allra þegar við verðum særð og alein. Ég trúi að þessir erfiðu tímar, þegar við erum áttavilt, og allt í kringum okkur virðis vera að hrinja, séu raunverulega brú til aukins þroska, tækifæri sem opna nýjar leiðir í lífinu. Við eigum í baráttu og reynum að ná aftur örygginu sem áður var, öryggi sem í raun erum við sjálf, við verðum sjálf að skapa okkur þau tækifæri sem veita okkur öryggi og hamingju. Við verðum að líta í aðrar áttir, með nýjum skilning, nýrri vitneskju, nýjum styrk. Svo virðis sem við þurfum að ganga í gegnum sársauka og erfiðleika, til þess að vaxa til nýrra hæða.
Pśffi
11. maķ 2008 klukkan 15:53
Ég var að setja saman myndaalbúm með myndum af Púffa, hann er einn að þessum sjaldséðu snillingum sem auðga líf manns með nærveru sinn. Púffi minn takk fyrir að vera til.
Heilręši
11. maķ 2008 klukkan 01:20
Temdu þér rósemi í dagsins önn, og mundu friðinn sem ríkir í þögninni. Reyndu að lynda við aðra án þess að láta þinn hlut. Segðu sannleikann af hógværð en festu, forðastu lygina. Hlustaðu á aðra þótt þeir kunni að hafa lítið til brunns að bera, allir hafa sína sögu að segja. Forðastu háværa og freka, þeir eru ætíð til ama. Vertu ekki að bera þig saman við aðra, þú verður engu bættari, sumir eru ofjarlar þínir, aðrir mega sig minna. Gakktu ótrauður að hverju verki, láttu ekki sitja við orðin tóm. Leggðu alúð við starf þitt, þótt þér finnist það léttvægt, vinnan er kjölfestan í völtum heimi. Vertu varfærin í viðskiptum, því margir eru víðsjálir. Lokaðu samt ekki augunum fyrir dyggðinni, þar sem hana er að finna. Margir stefna að háleitu marki og allstaðar er verið að drýgja dáð. Vertu sannur, reyndu ekki að sýnast. Ræktaðu með þér góðvild, því þrátt fyrir þyrring og kulda, er hún fjölær eins og grasið. Stæltu hugann svo hann verði þér vörn í hretvirðum lífsins. Auktu þér ekki áhyggjur að ástæðulausu. Margur óttinn stafar af þreytu og einmannakennd. Agaðu sjálfan þig, vertu sterkur. Þú ert þessa heims barn, rétt eins og dýrin og gróðurinn, þú átt þinn rétt. Þú færð þín tækifæri þótt þú gerir þér það ekki alltaf ljóst. Vertu sáttur við sjálfan þig og umhverfi þitt. Lífið er þess virði að lifa því þrátt fyrir erfiðleika og vonbrigði. Vertu sannur í hugsun og verki, leitaðu hamingjunnar, þá gengur þér betur.
Nżar Myndir
10. maķ 2008 klukkan 17:49
Jæja elskurnar, ég var að setja inn nokkurar nýjar myndir í málverkaalbúmið, endilega kíkja. Það er allt gott að frétta af okkur hér í sveitinni, Ég byrjaði daginn á göngubrettinu og svo í æfingastöðina, er að verða jafn massaður og Arnaldur Gamli Svakanaggi he. he, svo fór ég í garðinn að vesinast smá. Ég vaknaði kl. 5 í morgun og brá heldur betur í brún þega ég leit út um gluggann, jörðin var hvít, það hafði snjóað um nóttina, en sem betur fer hvarf snjórinn fljótt. það hlýnaði hratt þegar líða fór á morguninn. Jæja ekki meira að sinni er að fara að steikja hamborgara, það eru allir byrjaðir að baula af hungri.
Góšverk
08. maķ 2008 klukkan 08:24
Sérhvert góðverk er kærleiksverk. Ef þú brosir til náunga þíns er það góðverk. Hvetjir þú náungann til dýrra dáða jafnast það á við að gefa ölmusu. Vísir þú viltum til vegar er það kærleiksverk. Að leiða blinda og aðstoða sjúka og þjáða er góðverk. það er góðgerðarstarfsemi að hreinsa grjót eða þyrna úr götunni. Kærleiksverk er að gefa þyrstum að drekka og hungruðum að borða.
Hin sönnu auðæfi mannsins í öðru lífi, eru góðverkin sem hann gerði náunganum í þessu lífi. Þegar menn deyja er spurt, hvað lét hann mikið eftir sig? En englarnir munu spyrja, hvað hefur hann sent mörg góðverk á undan sér?
Hin sönnu auðæfi mannsins í öðru lífi, eru góðverkin sem hann gerði náunganum í þessu lífi. Þegar menn deyja er spurt, hvað lét hann mikið eftir sig? En englarnir munu spyrja, hvað hefur hann sent mörg góðverk á undan sér?
